Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. maí 2021 17:00
Aksentije Milisic
Frakkland: PSG komið á toppinn í bili
Mynd: Getty Images
PSG 2-1 Lens
1-0 Neymar ('33)
2-0 Marquinhos ('59)
2-1 Ignatius Ganago ('61)

PSG vann gífurlega mikilvægan sigur á Lens rétt í þessu.

Brasilíumaðurinn Neymar kom PSG yfir á 33. mínútu leiksins og var staðan 1-0 þegar flautað var til leikhlés.

Marquinhos tvöfaldaði forystu þegar um hálftími var eftir af leiknum en miðvörðurinn hefur verið iðinn við kolann upp við mark andstæðingana að undanförnu.

Ignatius Ganago minnkaði muninn fyrir Lens en nær komust gestirnir ekki. Gífurlega mikilvægur sigur hjá PSG sem fer hið minnsta tímabundið á toppinn.

Lille gæti endurheimt toppsætið í kvöld þegar það mætir Nice á heimavelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner