Brescia og SPAL áttust við í Serie B deildinni á Ítalíu í dag.
Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Brescia og kom hann heimamönnum á bragðið á 27. mínútu leiksins.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Brescia og var þetta mjög mikilvægur sigur fyrir liðið í baráttunni um umspilsæti.
Brescia er nú með 47 stig í tíunda sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Chievo Verona sem situr í síðasta umspilssætinu. Þrjár umferðir eru eftir að deildinni.
Birkir spilaði allan leikinn í dag.
Athugasemdir