Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 01. júní 2026 00:21
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Þriggja marka sigur Augnabliks - Stólarnir á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tindastóll er með fjögurra stiga forystu á toppi 3. deildar karla eftir 2-1 sigur liðsins á Reyni Sandgerði í dag.

Stólarnir voru að ná í fjórða sigurinn í deildinni. Ariel Reinero kom liðinu yfir á 35. mínútu en Sigurður Orri Ingimarsson jafnaði þegar fimm mínútur voru búnar af síðari hálfleiknum.

Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson tryggði Stólunum sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok og eru þeir nú á toppnum með þrettán stig eftir fimm umferðir.

Augnablik vann 3-0 sigur á Hetti. Bjarki Viðar Björnsson og Arnar Smári Arnarsson skoruðu tvö mörk á fyrstu níu mínútunum og rak Guðmundur Andri Ólason síðasta smiðshöggið rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Augnablik eru með átta stig í 4. sæti deildarinnar.

Úrslit og markaskorarar:

Tindastóll 2 - 1 Reynir S.
1-0 Ariel Reinero ('35 )
1-1 Sigurður Orri Ingimarsson ('50 )
2-1 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('85 )

Augnablik 3 - 0 Höttur
1-0 Bjarki Viðar Björnsson ('6 )
2-0 Arnar Smári Arnarsson ('9 )
3-0 Guðmundur Andri Ólason ('68 )
3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Tindastóll 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
2.    KV 5 3 0 2 15 - 13 +2 9
3.    Reynir S. 5 3 0 2 10 - 9 +1 9
4.    Augnablik 5 2 2 1 12 - 8 +4 8
5.    KH 4 2 1 1 15 - 8 +7 7
6.    Víðir 4 2 1 1 7 - 6 +1 7
7.    KÁ 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
8.    Höttur 5 1 2 2 5 - 6 -1 5
9.    Árbær 4 1 1 2 9 - 12 -3 4
10.    Ýmir 4 1 1 2 7 - 10 -3 4
11.    Sindri 5 1 1 3 4 - 14 -10 4
12.    KF 5 0 2 3 5 - 10 -5 2
Slapp
banner
banner
banner
banner