Brasilíska landsliðið vann frábæran 6-2 sigur á Panama í vináttulandsleik á Maracana-leikvanginum í Rio de Janeiro í nótt.
Strákarnir hans Carlo Ancelotti eru í miðjum undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.
Vinicius Junior skoraði frábært mark á fyrstu mínútu leiksins eftir stoðsendingu Casemiro áður en Matheus Cunha varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þrettán mínútum síðar.
Casemiro kom Brössum aftur í forystu undir lok fyrri hálfleiksins, en Ancelotti tók hann og sex aðra af velli í hálfleik. Rayan, leikmaður Bournemouth, var einn af þeim sem kom inn á en hann skoraði þriðja markið eftir undirbúning Igor Thiago áður en Lucas Paqueta bætti við fjórða.
Thiago kom sér á blað á 63. mínútu með marki úr vítaspyrnu áður en Danilo gerði síðasta mark Brassa á 81. mínútu eftir stoðsendingu Paqueta.
Carlos Havert, leikmaður Minnesota United, skoraði stórkostlegt sárabótarmark á 84. mínútu og þar við sat.
Brasilía mætir Egyptalandi þann 7. júní sem verður síðasti landsleikur beggja þjóða fyrir HM.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



