Írski landsliðsfyrirliðinn Katie McCabe er að ganga í raðir Chelsea frá Arsenal.
McCabe, sem er þrítugur vinstri bakvörður, yfirgaf Arsenal á dögunum eftir ellefu ára dvöl hjá félaginu. Á tíma sínum hjá Arsenal vann hún sjö titla, þar á meðal WSL-deildina og Meistaradeild Evrópu.
Samkvæmt Sky Sports er hún að ganga í raðir nágrannanna í Chelsea og verður gengið frá félagaskiptunum á næstu dögum.
McCabe var með tilboð frá Manchester City og félögum í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum en hún vildi frekar vera áfram í Lundúnum.
Hún hefur verið í hópi bestu varnarmanna heims síðustu ár og hefur þrisvar verið valin á hundrað manna lista Guardian yfir bestu leikmenn heims.



