Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ómögulegt verkefni framundan hjá Vestra - Þetta eru mögulegir andstæðingar
Bikarmeistararnir í fyrra.
Bikarmeistararnir í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Dregið 16. júní.
Dregið 16. júní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri verður eitt af tólf liðum sem tekur þátt í fyrstu umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni.

Vestri, sem er í Lengjudeildinni, og vann sér inn þátttökurétt með því að verða bikarmeistari í ágúst í fyrra. Bikarmeistarasætið er næst verðmætasta Evrópusætið því eins og staðan er í dag fylgir því fallhlíf.

Ef Vestri tapar færist liðið yfir í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Vestri spilar því að lágmarki fjóra Evrópuleiki í sumar.

Dregið verður 16. júní en ljóst er hvaða sex liðum Vestri getur mætt. Vestri verður í neðri styrkleikaflokki og mætir liði úr efri styrkleikaflokknum í tveggja leikja einvígi. Öll liðin sem Vestri getur mætt eru stórlið frá austari hluta álfunnar.

Degi seinna, 17. júní, verður svo dregið í 2. umferð forkeppninnar, bæði í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.

Heimaleikur Vestra í forkeppni Evrópudeildarinnar fer fram á AVIS-vellinum í Laugardal. Leikirnir í umferðinni verða spilaðir 9. og 16. júlí.

Efri styrkleikaflokkur (seeded)
Ferencváros (Ungverjaland)
Qarabag (Aserbaísjan)
Sheriff Tiraspol (Moldavía)
Dynamo Kyiv (Úkraína)
Hajduk Split (Króatía)
CSKA Sofia (Búlgaría)

Neðri styrkleikaflokkur (unseeded)
Žilina (Slóvakía)
Vojvodina (Serbía)
Universitatea Cluj (Rúmenía)
Aluminij (Slóvenía)
Derry City (Írland)
Vestri (Ísland)
Slapp
banner