Inkasso-deildin var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, ræddi gang mála í deildinni.
Þá var rætt við leikmann Stjörnunnar, Eyjólf Héðinsson, um umræðu um sameiningu Leiknis og ÍR.
Eyjólfur er uppalinn ÍR-ingur og er með sterkar skoðanir á sameiningarmálum í Breiðholti. Hann vill sjá félögin sameina knattspyrnudeildir sínar undir nafni Breiðholts.

Í viðtalinu fór hann vel yfir rök sín í þessu máli.
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Davíð og Eyjólf en hægt er að hlusta á umræðuna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
Hlustaðu gegnum Podcast forrit
Athugasemdir