Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. júlí 2022 08:56
Elvar Geir Magnússon
Ný VAR rangstöðutækni notuð á HM
Mynd: FIFA
Collina.
Collina.
Mynd: Getty Images
FIFA hefur staðfest að rangstöðudómar á HM í Katar verði að hluta til sjálfvirkir með nýrri tækni sem á að flýta fyrir ákvörðunum.

Örlítill sendir verður í boltanum sem lætur vita af nákvæmri staðsetningu hans 500 sinnum á sekúndum og er tengdur tólf myndavélum sem staðsettar verða á þaki leikvangarins og nema hvar allir leikmennirnir eru.

Þannig er reiknað út hvaða leikmenn séu rangstæðir og kerfið lætur VAR aðstoðardómarann vita. Kerfið var prófað á Arab Cup á síðasta ári og á HM félagsliða.

Talið er að það flýti ákvörðunum um rangstöður í gegnum VAR frá 70 sekúndum niður í 25 sekúndur.

Talað hefur verið um að aukin tækni í dómgæslu séu að minnka mikilvægi og völd dómaranna sjálfra en Pierluigi Collina, yfirmaður dómgæslu hjá FIFA, tekur ekki undir það.

„Ég heyrði talað um vélmenni í stað dómara. Ég skil að það er góð fyrirsögn en þannig er þetta ekki. Dómararnir sjá enn um að taka ákvarðanir inni á vellinum. Hann sér um að meta leikbrot en okkar markmið er að aðstoða hann við að taka réttar ákvarðanir. Það verða áfram umræður um vafaatriði," segir Collina.
Athugasemdir
banner
banner
banner