Fotbolti.net
01.08.23 - 18:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ánægður að geta spilað gegn Dundalk - „Heppnir að ná að koma þessu í flýtimeðferð"

Auglýsing
Að sjálfsögðu er frábært að Dusan sé með

Að sjálfsögðu er frábært að Dusan sé með

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum mjög spenntir að fara til Írlands og spila seinni leikinn. Við náðum í góð úrslit í fyrri leiknum og förum með miklar vonir inn í seinni leikinn," sagði Dusan Brkovic, varnarmaður KA, í viðtali við Fótbolta.net.

KA er á leið í seinni leikinn gegn Dundalk í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinar. Liðið leiðir 3-1 eftir leik liðanna síðasta fimmtudag.
„Við verðum að vera ánægðir með úrslitin, frammistaðan getur alltaf verið betri og við vonumst alltaf til að spila betur í næsta leik."

Dusan var ekki með í 1. umferðinni. Hann missti af fyrri leiknum gegn Connah's Quay Nomads vegna meiðsla og hann fekk ekki vegabréfsáritun fyrir ferðina til Englands.

„Það var erfitt, ég var smá meiddur í fyrri leiknum og í seinni leiknum gat ég ekki ferðast vegna vandamála með vegabréfsáritun."

„Utan frá, þegar þú ert ekki með, þá geturu ekki breytt neinu. Ég var smá stressaður en hafði trú á liðfélögunum að ná sigrinum heim."

„Nei, þetta eru allt góðir leikmenn sem vita hvað þarf að gera, við treystum hvor öðrum og höfum trú á hvor öðrum. Það þurfti ekki að segja neitt."


Dusan er 34 ára Serbi sem þekkir ágætlega að fara í Evrópukeppni. „Ég held þetta sé 4. eða 5. tímabilið mitt í Evrópu, fór í forkeppni þegar ég var í Ungverjalandi."

Dusan fékk vegabréfsáritun fyrir ferðina til Írlands og verður því með á fimmtudaginn. KA græjaði vegabréfsáritun fyrir leikmanninn í gegnum Noreg.

„Við græjuðum það í tíma, Stóra-Bretland er ekki hluti af Schengen og ég þurfti að sækja um og bíða 2-3 vikur eftir svari. Við vorum heppnir að ná að koma þessu í flýtimeðferð. Ég er ánægður að geta ferðast með liðinu," sagði Dusan.

Viðtalið við hann má sjá í spilaranum efst. Hann ræðir þar einnig um rauða spjaldið sem hann fékk í síðasta leik og tímann hjá KA.

Frábært að Dusan sé með
Þjálfarinn, Hallgrímur Jónasson, var spurður út í Dusan og vegabréfsáritunina.

„Það fór í gegnum Noreg, ég fékk að vita eftir heimaleikinn við Dundalk að þetta væri klárt. Já, ef hann getur spilað meira en í síðasta leik, þá er það léttir," sagði Haddi og hló.

„Hann er frábær, við erum tæpir aftast, vitum ekki alveg stöðuna á Ívari, Rodri er búinn að spila með smá verk í ökklanum. Að sjálfsögðu er frábært að Dusan sé með," sagði Haddi.

Leikurinn gegn Dundalk hefst klukkan 18:45 á fimmtudagskvöld og fer fram á heimavelli Dundalk: Oriel Park.
Ég var smá stressaður

Ég var smá stressaður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum mjög spenntir að fara til Írlands og spila seinni leikinn

Við erum mjög spenntir að fara til Írlands og spila seinni leikinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haddi: Ferðumst meira en liggur við öll lið í heiminum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.