Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. september 2021 05:55
Victor Pálsson
Meistaradeildin í dag - Blikar spila í Króatíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik spilar leik í Meistaradeild kvenna í kvöld en flautað er til leiks klukkan 16:00 í Króatíu.

Breiðablik spilar við Osijek á útivelli í úrslitum en síðari leikurinn verður svo spilaður á Kópavogsvelli.

Breiðablik er búið að slá tvö lið úr keppninni hingað til eða Klakvik frá Færeyjum og Gintra frá Litháen.

Osijek er töluvert sterkara lið og hefur slegið út Breznica og Anderlecht í leikjum sínum til þessa.

Seinni leikurinn verður spilaður þann 9. september hér heima.

Meistaradeild kvenna:
16:00 Osijek - Breiðablik
16:00 Sparta Prag - Koge
16:00 Wolfsburg - Bordeaux
17:00 Valerenga - Hacken
17:00 Vllaznia - Juventus
17:15 Servette - Glasgow
19:00 Levante - Lyon

Athugasemdir
banner
banner