Arsenal og Liverpool mætast í annað sinn á nokkrum dögum eftir 3-1 sigur Liverpool á Anfield á mánudagskvöldið.
Jürgen Klopp og Mikel Arteta mættu til leiks með sín bestu lið en í kvöld er hægt að búast við einhverjum mun á byrjunarliðunum þar sem lykilmenn þurfa hvíld fyrir næstu umferð í ensku úrvalsdeildinni.
Rúnar Alex Rúnarsson gæti spilað sinn fyrsta keppnisleik fyrir Arsenal. Þá má búast við að sjá menn á borð við Diogo Jota, Takumi Minamino og Nicolas Pepe í byrjunarliðunum í dag.
Liverpool verðskuldaði sigurinn gegn Arsenal, þó gestirnir hafi átt nokkur dauðafæri sem fóru forgörðum þrátt fyrir yfirburði heimamanna.
Brentford og Fulham eigast við í fyrsta leik dagsins, áður en Aston Villa tekur á móti Stoke City.
Leikir kvöldsins:
16:30 Brentford - Fulham
18:00 Aston Villa - Stoke City
18:45 Liverpool - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir