Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. október 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Tilboði West Ham í Vanaken hafnað
Mynd: Getty Images
Club Brugge hefur hafnað þrettán milljóna punda tilboði í miðjumanninn Hans Vanaken.

Hinn 28 ára gamli Vanaken skoraði fimmtán mörk í 35 leikjum í belgísku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Vanaken á einnig fimm leiki að baki með belgíska landsliðinu.

David Moyes, stjóri West Ham, er að vinna í að styrkja hópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn.

Hægri bakvörðurinn Vladimir Coufal er að koma frá Slavia Prag á fimm milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner