Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 02. febrúar 2020 12:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Haaland segist enn eiga talsvert inni
Erling Haaland.
Erling Haaland.
Mynd: Getty Images
Erling Haaland hefur heldur betur byrjað vel hjá Borussia Dortmund í Þýskalandi eftir að hafa komið til félagsins frá Salzburg í Austurríki í janúar.

Þessi 19 ára gamli Norðmaður er búinn að skora 7 mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í þýska boltanum.

Haaland var í fyrsta skipti í byrjunarliði Dortmund í gær í 5-0 sigri liðsins á Union Berlin, þar skoraði hann 2 mörk. Haaland var að glíma við meiðsli á hné í janúar og segist ekki vera búinn að finna sitt besta form enn.

„Þetta var erfitt í dag en gaman að fá að byrja leik. Ég á enn talsvert inni, ég er ekki alveg 100% heill enn sem komið er," sagði Haaland eftir sigurinn í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner