Skoska landsliðið hefur valið táninginn Tyler Fletcher til að taka sæti í landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið.
Fletcher kemur inn í hópinn fyrir Billy Gilmour sem meiddist í vináttulandsleik gegn Curacao um helgina.
Fletcher er aðeins 19 ára gamall og er samningsbundinn Manchester United. Hann er sonur Darren Fletcher, fyrrum leikmanns og bráðabrigðaþjálfara Man Utd.
Fletcher á 22 leiki að baki fyrir yngri landslið Skotlands og hefur einu sinni komið við sögu með A-landsliðinu. Þá lék hann þrjá landsleiki fyrir U16 lið Englands áður en hann skipti yfir til skoska landsliðsins.
Tvíburabróðir hans, Jack Fletcher, valdi England framyfir Skotland og hefur leikið 28 leiki fyrir unglingalandsliðin.
31.05.2026 06:00
Missir af HM með Skotum vegna meiðsla
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




