Evrópska fótboltatímabilinu í stærstu deildum álfunnar lauk formlega þegar PSG lagði Arsenal að velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar um helgina.
31.05.2026 17:00
Fimm frá meisturunum í liði ársins - Kvaratskhelia bestur
Lið tímabilsins var kynnt og innihélt það fimm leikmenn úr röðum PSG, þrjá úr röðum Arsenal og tvo frá FC Bayern auk eins leikmanns Atlético Madrid. Ekki mátti finna neinn leikmann úr sigursælu stórveldi Real Madrid sem var slegið úr leik í 8-liða úrslitum.
Tveir leikmenn liðsins hljóta þó einstaklingsverðlaun fyrir framlag sitt á Meistaradeildartímabilinu, Arda Güler og Federico Valverde.
Guler hlýtur nafnbótina besti ungi leikmaður tímabilsins á meðan Valverde skoraði mark tímabilsins.
Valverde skoraði magnaða þrennu á 23 mínútna kafla gegn Manchester City í 16-liða úrslitum og var þriðja og síðasta markið einstaklega laglegt.






