Leikmenn Paris Saint-Germain eru í sjöunda himni eftir að hafa unnið Meistaradeildina annað árið í röð.
PSG lagði Arsenal að velli eftir vítaspyrnukeppni á laugardaginn þar sem brasilíski miðvörðurinn Gabriel Magalhaes klúðraði síðustu spyrnunni.
Portúgalski miðjumaðurinn Vitinha var valinn sem besti leikmaður úrslitaleiksins og hrósaði Luis Enrique þjálfara í hástert að leikslokum. Hann talaði einnig um að vera hungraður í þriðja Meistaradeildartitilinn í röð, en PSG yrði aðeins annað félagið í nútímasögu keppninnar til að afreka það að vinna þrjá titla í röð eftir að Real Madrid tókst það 2016-2018. Liðsfélagar Vitinha tóku undir.
„Við erum ungir og hungraðir og ætlum að vinna þessa keppni aftur á næsta ári," sagði Désiré Doué til að mynda og var miðjumaðurinn Joao Neves galvaskur.
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá sá ég bara eitt lið á vellinum í dag. Það er mjög erfitt að vinna Meistaradeildina einu sinni, hvað þá tvisvar? Þetta þýðir að við verðum að vinna keppnina þriðja árið í röð og festa okkur í sessi í sögubókunum. Við verðum að verja titilinn!" sagði Neves. „Að ganga til liðs við PSG var besta ákvörðun lífs míns."
Kantmennirnir öflugu Ousmane Dembélé og Khvicha Kvaratskhelia tjáðu sig einnig að leikslokum. Þeir töluðu um að vera ánægðir eftir erfitt tímabil og hrósuðu Luis Enrique þjálfara í hástert.
30.05.2026 19:44
Enrique: Stærra en í fyrra





