Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. júlí 2020 09:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti: Vonandi getur Everton barist fljótlega um titilinn
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, vonast til að geta búið til lið sem getur barist um titilinn í ensku úrvalsdeildinni.

Ancelotti tók við Everton í vetur og stefnir á stóra hluti með liðið. Í gærkvöldi hafði liðið betur gegn Leicester City og var það annar sigur liðsins í röð.

„Ég vona að Everton geti fljótlega verið samkeppnishæft og barist um titilinn í ensku úrvalsdeildinni við Liverpool, Chelsea, Tottenaham, Manchester United og öll stóru liðin," sagði Ancelotti.

„Ég veit ekki hvað það tekur langan tíma en vonandi getum við farið að keppa fljótlega."

„Við erum með ungan hóp með unga og hæfileikaríka leikmenn sem hafa mikla hæfileika."

Athugasemdir
banner
banner
banner