Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. ágúst 2021 21:23
Victor Pálsson
Joe Hart fer til Celtic - 15 þúsund pund á viku
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Joe Hart er að ganga í raðir skoska liðsins Celtic. Þetta segir blaðamaðurinn áreiðanlegi Fabrizio Romano í kvöld.

Í síðasta mánuði var greint frá áhuga Celtic og hafa viðræðurnar gengið hratt fyrir sig.

Romano segir að Hart fái 15 þúsund pund í vikulaun í Skotlandi sem er töluvert minna en hann er vanur.

Hart er á mála hjá Tottenham þessa stundina en hann var varamarkvörður fyrir Hugo Lloris á síðustu leiktíð.

Hart er þó þekktastur fyrir tíma sinn hjá Manchester City og var aðalmarkvörður enska landsliðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner