Tveir leikmenn í Bestu deild karla voru úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar í dag. Þeir fara í leikbann vegna uppsafnaðra áminninga.
Adolf Daði Birgisson í Stjörnunni verður í banni þegar Garðabæjarliðið heimsækir Fram á morgun.
Ernir Bjarnason, miðjumaður Keflavíkur, tekur út bann á mánudag þegar Keflavík heimsækir hans fyrrum félag, Leikni í Breiðholti.

Í Lengjudeildinni voru þeir Arnar Þór Helgason og Luke Rae í Gróttu og þrír leikmenn KV; Njörður Þórhallsson, Samúel Már Kristinsson og Þorsteinn Örn Bernharðsson, dæmdir í eins leiks bann vegna uppsafnaðra áminninga.
Þá fékk Silas Songani í Vestra eins leiks bann vegna brottvísunar í leik gegn Þrótti Vogum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir