Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 02. september 2020 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bestur í 2. deild: Þessi þrjú mörk skila þeim þremur stigum
Edon Osmani (Víðir)
Edon við hlið Hólmars Arnar
Edon við hlið Hólmars Arnar
Mynd: Víðir
Víðir vann þriggja marka sigur gegn Fjarðabyggð um liðna helgi sem gefur liðinu smá andrými í baráttunni í neðri hluta 2. deildar. Edon Osmani var maður leiksins og skoraði hann þrennu.

Edon var fyrir frammistöðu sína valinn Ice-leikmaður umferðarinnar í 2. deild. Það er hlaðvarpsþátturinn Ástríðan sem velur leikmann umferðarinnar. Hlusta má á nýjasta þáttinn hér neðst í fréttinni.

Edon hefur skorað fjögur mörk í tíu leikjum í sumar. Hann er fæddur árið 2000 og er hann að láni frá Keflavík. Edon ólst upp í Garðinum og spilaði í yngri flokkum Víðis áður en hann skipti yfir til Keflavíkur árið 2011.

„Valið er sanngjarnt. Hann skorar þrennu fyrir lið sem er búið að ströggla og þessi þrjú mörk skila þeim þremur stigum," sagði Alexander Már Þorláksson sem var gestur þáttarins.

„Osmani hefur verið öflugur hjá Víði í sumar - virkilega vel að þessu kominn," sagði Sverrir Mar Smárason.

Sjá einnig:
Bestur í 1. umferð - Hrvoje Tokic (Selfoss)
Bestur í 2. umferð - Oliver Helgi Gíslason (Haukar)
Bestur í 3. umferð - Nikola Dejan Djuric (Haukar)
Bestur í 4. umferð - Hrannar Snær Magnússon (KF)
Bestur í 5. umferð - Dino Hodzic (Kári)
Bestur í 6. umferð - Andy Pew (Þróttur Vogum)
Bestur í 7. umferð - Þorsteinn Aron Antonsson (Selfoss)
Bestur í 8. umferð - Oumar Diouck (KF)
Bestur í 9. umferð - Alexander Helgason (Þróttur V.)
Bestur í 10. umferð - Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
Bestur í 11. umferð - Magnús Þórir Matthíasson (Kórdrengir)

Næstu leikir í 2. deild (Í DAG!):
17:30 KF-Dalvík/Reynir (Ólafsfjarðarvöllur)
17:30 ÍR-Víðir (Hertz völlurinn)
17:30 Selfoss-Haukar (JÁVERK-völlurinn)
17:30 Fjarðabyggð-Völsungur (Eskjuvöllur)
Ástríðan - Leikjaflóðið í 2. og 3. deild heldur áfram
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner