Fotbolti.net
02.09.22 - 17:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu mörkin: Sara Björk 2 Hvíta Rússland 0

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði.

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair

Leikur Íslands og Hvíta Rússlands er í fullum gangi en eftir tæpan stundarfjórðun hefur Ísland náð forystunni.

Lestu um leikinn: Ísland 6 - 0 Hvíta-Rússland

Ekki nóg með það heldur hefur Ísland skorað tvö mörk gegn engu. Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gerði bæði mörkin.

Fyrra markið kom úr vítaspyrnu sem Amanda Andradóttir nældi í eftir að skot hennar hafnaði í hönd varnarmanns Hvít Rússa.

Aðeins tveimur mínútum síðar kom fyrirgjöf þar sem Sara Björk stökk hæst og skallaði boltann í netið.

Með sigri nægir Íslandi jafntefli gegn Hollandi ytra eftir helgi til að komast beint á HM. Mörkin má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.