Núna styttist í leik Íslands og Hvíta-Rússlands á Laugardalsvelli. Flautað verður til leiks klukkan 17:30.
Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir okkar lið upp á það að komast inn á HM í fyrsta sinn.
Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir okkar lið upp á það að komast inn á HM í fyrsta sinn.
Stelpurnar okkar eru mættar út á völl og eru að hita upp fyrir þennan mikilvægan leik.
Hafliði Breiðfjörð er mættur út á völl með myndavélina á lofti og hann náði skemmtilegum myndum, þá sérstaklega af Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur.
Gunnhildur og Sveindís tókust á í tvígang á æfingasvæðinu í gær og þá hafði Gunnhildur betur en Sveindís náði fram hefndum fyrir leikinn í dag.
Allt í léttum dúr auðvitað, en andinn í liðinu virðist vera einstaklega góður.
Athugasemdir