Endrick, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Harvey Elliott og N'Golo Kante og fleiri koma fram í slúðurpakka dagsins.
   sun 02. nóvember 2025 13:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið West Ham og Newcastle: Wilson mætir gömlu félögunum - Trippier veikur
Mynd: EPA
West Ham fær Newcastle í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag. West Ham getur komist upp fyrir Nottingham Forest í 18. sæti deildarinnar með sigri en Newcastle getur komist upp fyrir Brighton í 10. sæti.

Callum Wilson er í byrjunarliði West Ham í annað sinn á tímabilinu. Hann mætir gömlu félögunum.

Það eru þrjár breytingar á liðinu frá 2-1 tapi gegn Leeds. Freddie Potts og Matheus Fernandes koma einnig inn. Tomas Soucek og Andy Irving setjast á bekkinn en Ollie Scarles er fjarverandi vegna meiðsla.

Kieran Trippier er fjarverandi vegna veikinda hjá Newcastle. Emil Krafth byrjar í hans stað. Jacob Murphy og Anthony Gordon eru frammi ásamt Nick Woltemade þá byrjar Sven Botman í stað Fabian Schar.

West Ham: Areola, Wan-Bissaka, Kilman, Todibo, Doiuf, Potts, Fernandes, Summerville, Paqueta, Bowen, Wilson
Varamenn: Hermansen, Walker-Peters, Igor, Guilherme, Rodriguez, Magassa, Soucek, Irving, Mayers

Newcastle: Pope, Krafth, Thiaw, Botman, Burn, Bruno, Tonali, Joelinton, Gordon, Woltemade, Murphy
Varamenn: Ramsdale, Hall, Schar, Barnes, Osula, Elanga, Willock, Ramsey, Miley
Athugasemdir
banner
banner