Fotbolti.net
02.11.25 - 17:01
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu jöfnunarmark Bournemouth: Klaufalegt hjá Donnarumma

Sjáðu jöfnunarmark Bournemouth: Klaufalegt hjá Donnarumma
Canon

Mynd: EPA

Manchester City og Bournemouth eru að etja kappi í toppbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina og er staðan jöfn, 1-1.
Erling Haaland slapp í gegn til að koma heimamönnum yfir snemma leiks en Bournemouth jafnaði metin með marki í kjölfar hornspyrnu þar sem Gianluigi Donnarumma gerði mistök.

Ítalski landsliðsmarkvörðurinn kom út í boltann en misreiknaði eitthvað flugið á honum. Hann ætlaði að kýla boltann burt en hitti hann illa, svo hann datt til Tyler Adams sem skoraði af stuttu færi.

Donnarumma vildi meina að það hafi verið brotið á sér í aðdraganda marksins, en VAR-teymið ákvað að skerast ekki inn í.

Sjáðu jöfnunarmarkið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.