Fotbolti.net
03.01.20 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Telur að Guardiola muni hverfa á brott eftir tímabilið

Er Guardiola á sínu síðasta tímabili með City?

Er Guardiola á sínu síðasta tímabili með City?

Canon

Mynd: Getty Images

Michael Brown, fyrrum miðjumaður Manchester City, telur að Pep Guardiola sé á sínu síðasta tímabili hjá Man City.
Guardiola hefur stýrt Man City frá 2016 og gert liðið að Englandsmeisturum síðustu tvö tímabil. City virðist ekki ætla að vinna sinn þriðja Englandsmeistaratitil í röð þar sem Liverpool er núna með mjög þægilegt forskot á toppi deildarinnar.

„Við þurfum núna að hugsa um næsta leik og að vinna leikina okkar. Það er óraunhæft að ná Liverpool úr þessu," sagði Guardiola eftir tap gegn Úlfunum þann 27. desember síðastliðinn.

Guardiola er samningsbundinn City til 2021, en Brown, sem ólst upp hjá City og spilaði með aðalliðinu frá 1995 til 1999, telur að Guardiola muni segja það gott eftir þetta tímabil.

„Ég held að hann muni fara eftir tímabilið," sagði Brown við Radio 5 Live, en hann telur að líkamstjáning Spánverjans hafi breyst að undanförnu.

Mikel Arteta hætti nýlega sem aðstoðarmaður Guardiola og tók við Arsenal.

„Mikel Arteta hefði íklega komið til greina sem eftirmaður Guardiola og hann spurði örugglega um það áður en hann tók við Arsenal. Augljóslega voru svörin ekki nægilega góð fyrir hann því hann fór til Arsenal," sagði Brown.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.