Fotbolti.net
03.04.20 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Ensku félögin funda í dag - Eitt félag vill flytja mótið til Kína

Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.

Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Félögin í ensku úrvalsdeildinni munu í dag funda í gegnum fjarfundabúnað en þar verður framhaldið í deildinni rætt. Búið er að fresta deildinni til 30. apríl vegna kórónuveirunnar en á fundinum í dag verður mótahaldi frestað ennþá frekar.

Ný dagsetning gæti verið sett í maí eða gert líkt og á Spáni og í Frakklandi þar sem keppni hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Níu umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni en félögin vilja klára tímabilið síðar á árinu til missa ekki af miklum sjónvarpstekjum.

Eitt félag hefur komið með þá uppástungu að klára tímabilið utan Englands til að auka ekki álagið á heilbrigðisstarfsfólk í Englandi. The Athletic greinir frá.

Umrætt félag vill að öll liðin í deildinni fari til Kina og spili síðustu umferðirnar þar, en kórónaveiran er að mestu búin að ganga yfir þar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.