Fotbolti.net
03.05.21 - 17:45
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Conte: Við felldum konungsveldi

Antonio Conte, stjóri Inter.

Antonio Conte, stjóri Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Í gær var Ítalíumeistaratitill Inter innsiglaður þegar önnur úrslit féllu með liðinu. Inter vann Crotone á laugardaginn og fyrst Atalanta vann ekki í gær varð Inter meistari.

„Við vissum að sigurinn gegn Crotone var mikilvægt skref. Það er afrek að ná að stöðva einokun sem hefur staðið yfir í níu ár. Juventus gerði ótrúlega hluti með því að vinna titilinn níu ár í röð. En það verður líka að heiðra þá sem felldu konungsveldið," segir Conte.
Níu ára sigurgöngu Juventus í ítölsku A-deildinni er lokið og Conte er gríðarlega stoltur af þessu afriki.

„Við erum verulega ánægðir, við vissum að þetta yrði mjög erfitt og við tókum ekki nokkru sem sjálfsögðum hlut. Ég hef gert allt til að láta Inter vinna, við leyfum okkur að fagna núna. Svo munum við ræða saman um framtíðina."

Conte er samningsbundinn Inter út næsta tímabil en búast má við því að honum verði boðið að framlengja hann.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.