Fotbolti.net
03.06.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Zoom tækni AGF að slá í gegn

Valsmenn nýttu sér Zoom myndbandstæknina í Covid pásunni.

Valsmenn nýttu sér Zoom myndbandstæknina í Covid pásunni.

Canon

Mynd: Skjáskot

Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í AGF lögðu OB að velli á mánudaginn.
Leikið var fyrir luktum dyrum á heimavelli Árósa en knattspyrnufélög víða um heim hafa verið að keppast við að finna nýjar hugmyndir til að bæta andrúmsloftið á leikvöngum sínum.

FC Midtjylland tók uppá því að sýna leik sinn á risaskjám á bílastæðinu fyrir utan leikvanginn á meðan AGF ákvað að koma risaskjáunum fyrir á vellinum sjálfum.

Skjáirnir snúa allir í átt að vellinum og eru fjölmargir stuðningsmenn AGF í mynd, að horfa á leikinn heima úr stofu. Notast er við Zoom myndbandstæknina, sem er hægt að sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.

Fleiri félög hafa verið að skoða þennan möguleika en bráðlega verður vonandi hægt að hleypa fólki aftur á völlinn.

The Danish Superliga has restarted and AGF are live-streaming fans watching the game at home on huge screens in the stadium. Awesome initiative from r/soccer


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.