Skotlandsmeistarar Celtic hafa átt í viðræðum við Robbie Keane um að taka við sem nýr stjóri liðsins. Sky Sports greinir frá því að Celtic muni funda frekar með Keane í vikunni.
Félagið er enn að meta stöðuna hjá Martin O'Neill, sem var bráðabirgðastjóri liðsins í tvígang á nýloknu tímabili.
Fari svo að O'Neill sé reiðubúinn að halda áfram sem stjóri liðsins er félagið tilbúið að gefa honum skammtímasamning.
Keane sagði upp störfum sem þjálfari ungverska félagsins Ferencvaros á dögunum en hann hafði stýrt liðinu í eitt og hálft ár.
Celtic hefur jafnframt verið orðað við Craig Bellamy, landsliðsþjálfara Wales.





