„Tilfinningin er mjög góð, ég er mjög stolt og þakklát," sagði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir í samtali við Fótbolta.net í dag. Hún er mætt til Kraká í Póllandi þar sem hún er að taka þát í sínu fyrsta verkefni með A-landsliði Íslands.
Ása, eins og hún er alltaf kölluð, hefur tekið að sér stærra hlutverk í liði Breiðabliks í sumar og staðið sig afskaplega vel. Hún var kölluð inn í A-landsliðið í fyrsta sinn eftir að ljóst var að Sveindís Jane Jónsdóttir gæti ekki tekið þátt í verkefninu vegna meiðsla.

„Steini hringdi bara í mig. Þetta var alveg smá óvænt en mér er búið að ganga vel í sumar og ég held að þetta hafi verið tiltölulega verðskuldað."
Þetta hefur auðvitað verið lengi á markmiðalistanum hjá Ásu.
„Já, búið að vera markmið síðan ég var fimm ára. Það er mjög mikill draumur að fá að upplifa þetta."
Hver fékk fyrst að vita að þú værir valin í landsliðið?
„Mamma, held ég. Svo kærastinn minn," sagði Ása.
Ása er orðin lykilmaður hjá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks og verið mjög góð í upphafi Bestu deildarinnar í sumar.
„Sumarið hefur verið mjög gott. Ég er ánægð með hlutverkið sem ég hef verið að fá núna. Það hefur gengið vel. Við duttum út úr bikarnum en mér finnst við vera á góðu róli og við verðum að byggja ofan á það," sagði Ása en allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.