Fotbolti.net
03.08.21 - 13:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dominos

Best í 12. umferð: Small loksins í kveðjuleiknum

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)

Marki fagnað

Marki fagnað

Canon

Mynd: Hafrún Guðmundsdóttir

Stjarnan vann 2-1 endurkomusigur gegn Selfossi í 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir skoraði bæði mörk Stjörnunnar í leiknum og var valin best á vellinum. Hún er besti leikmaður 12. umferðar að mati Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Úrvalslið 12. umferðar
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 Selfoss
„Úlfa Dís var feykilega öflug í dag, það sást minna til hennar í fyrri hálfleik en eftir að Kristján færði hana ofar á völlinn í seinni hálfleik var hún óstöðvandi, skoraði bæði mörk Stjörnnunar og ógnaði marki Selfoss mikið," skrifaði Sigríður Dröfn Auðunsdóttir í skýrsluna eftir leik.

Fyrra markið skoraði Úlfa 53. mínútu og það seinna á 79. mínútu.

Úlfa var til viðtals hér á Fótbolti.net eftir leikinn.

„Ég er bara ótrúlega sátt. Loksins small þetta, ég er búin að eiga nokkur skot í sumar en loksins kom þetta," sagði Úlfa Dís.

Hún fór daginn eftir leik til Bandaríkjanna, til Kentucky þar sem hún fer í háskóla. „Mér líst bara mjög vel á framhaldið, ég mun styðja stelpurnar áfram því að ég er náttúrulega að fara út."

Úlfa er tvítug og gekk í raðir Stjörnunnar frá FH fyrir þetta tímabil. Hún var að skora sitt annað og þriðja mark í efstu deild. Hún á fjóra leiki fyrir yngri landsliðin að baki.

Domino's gefur verðlaun
Leikmaður umferðarinnar í Pepsi Max-deild kvenna fær verðlaun frá Domino's í sumar.

Bestar í sumar:
1. umferð - Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
2. umferð - DB Pridham
3. umferð - Murielle Tiernan
4. umferð - Brenna Lovera
5. umferð - Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
6. umferð - Aerial Chavarin
7. umferð - Arna Sif Ásgrímsdóttir
8. umferð - Elín Metta Jensen
9. umferð - Amber Kristin Michel
10. umferð - Barbára Sól Gísladóttir
11. umferð - Heiðdís Lillýardóttir
Virkilega sátt

Virkilega sátt

Canon

Mynd: Hafrún Guðmundsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.