Úrslitakeppni 4. deildar er í fullum gangi og fóru þrír leikir fram í dag þar sem Árbær rústaði Uppsveitum með átta mörkum gegn engu.
Árbæingar eru því í frábærri stöðu fyrir seinni leikinn á útivelli. Heimamenn rúlluðu yfir gestina og deildu mörkunum bróðurlega á milli sín þar sem Eyþór Ólafsson og Jonatan Aaron Belanyi voru atkvæðamestir með sitthvora tvennuna.
Hvíti riddarinn vann þá útileik gegn Tindastóli og er einu marki yfir fyrir seinni viðureignina á meðan Ýmir hafði betur í fjörugum sjö marka leik gegn KFK.
Að lokum unnu Samherjar stórsigur gegn Álafossi í umspili um sæti í 5. deild. Samherjar unnu fyrri leikinn 0-2 á útivelli og seinni 6-0 heima, samanlagður 8-0 sigur.
Aðalgeir Axelsson setti fernu í sigri Samherja.
Árbær 8 - 0 Uppsveitir
1-0 Jonatan Aaron Belányi ('3 )
2-0 Aron Breki Aronsson ('6 )
3-0 Sæmundur Sven A Schepsky ('42 )
4-0 Eiður Snær Unnarsson ('44 )
5-0 Ævar Daði Stefánsson ('50 )
6-0 Eyþór Ólafsson ('67 )
7-0 Jonatan Aaron Belányi ('78 )
8-0 Eyþór Ólafsson ('87 )
Tindastóll 1 - 2 Hvíti riddarinn
0-1 Eiður Andri Thorarensen ('31 )
1-1 Konráð Freyr Sigurðsson ('38 , Mark úr víti)
1-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('43 )
Ýmir 4 - 3 KFK
1-0 Ólafur Örn Ploder ('18 )
2-0 Hörður Máni Ásmundsson ('26 , Mark úr víti)
2-1 Jamal Michael Jack ('55 )
3-1 Ólafur Örn Ploder ('56 )
4-1 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('73 )
4-2 Hilmar Rafn Emilsson ('89 )
4-3 Hilmar Rafn Emilsson ('90 )
Samherjar 6 - 0 Álafoss
1-0 Aðalgeir Axelsson ('24)
2-0 Agnar Tumi Arnarsson ('51)
3-0 Aðalgeir Axelsson ('68)
4-0 Aðalgeir Axelsson ('70)
5-0 Aðalgeir Axelsson ('83)
6-0 Ágúst Örn Víðisson ('91)
Rautt spjald: Rúnar Þór Brynjarsson, Samherjar ('93)
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |