Katrín Ásbjörnsdóttir verður áfram í Garðabænum, hún hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna.
Katrín verður 29 ára eftir rúma viku og er þekkt fyrir að vera þokkalegasti markaskorari.
Katrín verður 29 ára eftir rúma viku og er þekkt fyrir að vera þokkalegasti markaskorari.
Í efstu deild hefur hún skorað 68 mörk í 156 leikjum og hefur á sínum ferli spilað nítján A-landsleiki.
Katrín glímdi við meiðsli hluta af tímabilinu í sumar og spilaði einungis níu leiki og skoraði þrjú mörk fyrir Stjörnuna sem endaði í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar.
Á sínum ferli hefur Katrín, sem er uppalin KR-ingur, leikið með KR, Þór/KA og Stjörnunni
Athugasemdir