Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. janúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
80 ára útgáfuafmæli Valsblaðsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í fyrra fagnaði Valsblaðið 80 ára útgáfuafmæli. Fyrsta Valsblaðið kom út í janúar 1939 en ritstjóri þess og ábyrgðarmaður var Sigurður Ólafsson. Hann og Frímann Helgason sáu um greinaskrif og báru hitann og þungan af útgáfunni árum saman.

Valsblaðið er ómetanleg heimild um starfsemi félagsins og gefur innsýn í helstu málefni og áherslur Vals á hverjum tíma, sigra utan vallar sem innan og tíðarandann.

Af ýmsum ástæðum var útgáfa blaðsins stopul eftir 1940 en það var endurvakið með krafti 1958. Frá árinu 1983 hefur Valsblaðið komið út árlega og nú er 71. tölublaðið komið út undir styrkri ritstjórn Guðna Olgeirssonar, sem hefur ritstýrt Valsblaðinu í tæpa tvo áratugi.

Smelltu hér til að skoða blaðið rafrænt. Einnig er hægt að nálgast blaðið í Origo-höllinni útprentað.
Athugasemdir
banner
banner
banner