Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 04. janúar 2020 13:50
Ívan Guðjón Baldursson
Capello: Ronaldo of hægur til að spila á kantinum
Fabio Capello, fyrrum þjálfari Juventus, telur að Maurizio Sarri eigi að hætta að nota Cristiano Ronaldo á kantinum.

Capello vill sjá Ronaldo spila fremstan því hann hefur ekki lengur hraðann sem hann bjó yfir á sínum yngri árum.

„Ronaldo er besti sóknarmaður í heimi, það er enginn sem nýtir plássið sitt í vítateignum betur en hann. Hann á ekki að spila á kantinum því hann býr ekki lengur yfir sama hraða og áður, hann á að spila í 'boxinu' eins og þeir segja á Englandi," sagði Capello við Gazzetta dello Sport.

Capello tjáði sig um leikmannamarkaðinn og sagði Inter geta gert mjög góða hluti í titilbaráttunni takist liðinu að krækja í Arturo Vidal frá Barcelona. Þá er Capello einnig spenntur fyrir Dejan Kulusevski, ungum Makedóna sem Juve keypti á dögunum og lánaði til Parma þar sem hann mun leika út leiktíðina.
Athugasemdir
banner
banner