04.01.20 - 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Marcus Bent genginn til liðs við Cornard United (Staðfest)

Marcus Bent, fyrrum sóknarmaður Everton, er genginn til liðs við enska utandeildarliðið Cornard United.
Bent verður 42 ára gamall í maí en það eru tæplega fjögur ár liðin frá því að hann komst í fréttirnar fyrir að veitast að lögreglu uppdópaður og vopnaður kjötexi.
Cornard er sextánda félagið sem Bent spilar fyrir á knattspyrnuferlinum en hann lýsti sig gjaldþrota í janúar í fyrra.
Bent gerði 40 mörk í 215 úrvalsdeildarleikjum á ferlinum. Hann skoraði mest 9 úrvalsdeildarmörk fyrir Ipswich tímabilið 2001-02 og 9 mörk fyrir Leicester 2003-04.