Helgina 7-10. mars ætlar Ferðaskrifstofan Tango Travel í samvinnu við Hjálmar Örn Jóhannsson að skella sér í alvöru fótboltaferð til London á tvo stórleiki í enska boltanum.
Hjálmar verður sérstakur skemmtanastjóri í ferðinni en meðal annars verður boðið upp á Pub Quiz. Honum til halds og traust verður Þór Bæring Ólafsson. Þetta er fótboltaferð fyrir fótboltafíkla sem vilja prófa eitthvað alveg nýtt!
ATH: Það eru aðeins 8 sæti eftir í þessa ferð!
Verðið er 159.900 kr á mann miðað við tvo saman í herbergi. Það kostar 40.000 kr aukalega að vera í einstaklingsherbergi.
Innifalið í pakkanum er flug með Play til London Stansted, 12 kg flugfreyjutaska + bakpoki, gisting í 3 nætur á Moxy London Stratford, morgunmatur, VIP-miðar á báða leikina, íslensk fararstjórn og íslenskur skemmtanastjóri.
Hér er hægt að skrá sig í ferðina ógurlegu
Dagskrá:
Á föstudeginum verður flogið til London og meðal annars ætlar Hjálmar Örn að vera með létt Pub Quiz svona aðeins til að hita hópinn upp fyrir gleði helgarinnar.
Á laugardeginum verður farið á leik Leyton Orient og Northampton í ensku 1. deildinni á Brisbane Road. Fyrir leikinn ætlar Þór Bæring Ólafsson að sýna hópnum hvar stuðningsmenn Leyton Orient hita upp fyrir leiki og svo fer hópurinn á völlinn. Miðarnir eru í East Stand á Brisbane Road.. Þetta er einstök upplifun fyrir alla sem elska enska boltann.
Á sunnudeginum verður svo farið á leik Tottenham og Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham Hotspur Stadium. Fyrir leikinn ætlar Hjalmar Örn að sýna hópnum hvar stuðningsmenn Tottenham hita upp fyrir leiki og svo fer hópurinn á völlinn í Travel Club Lounge en þar eru í boði smáréttir og fyrrum leikmaður Tottenham mætir á svæðið. Einnig eru í boði drykkir í hálfleik. Miðarnir eru svo í Block 312-313 í stúkunni.
Á mánudeginum verður svo flogið heim eftir rosalega fótboltaveislu í London.
Nánari upplýsingar um flug og hótel:
Flug með PLAY
7. mars 2025
Keflavík - London Stansted 07:00 - 10:00
10. mars 2025
London Stansted - Keflavik 11:00 - 14:05
Hótel:
Moxy London Stratford
86 Great Eastern Road
London E15 1GR
Þess má geta að Ferðaskrifstofan Tango Travel setti í sölu á dögunum ferðir á leiki Barcelona og Bayern Munchen.
Hér er hægt að skoða allar fótboltaferðir sem eru í boði hjá Tango Travel
Athugasemdir