Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 04. apríl 2021 11:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fullkomið svar - „Ekki hægt að skilja Trent eftir heima í sumar"
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörður Liverpool, var mjög óvænt ekki í landsliðshópi Gareth Southgate í mars.

Trent hefur ekki átt frábært tímabil með Liverpool en mörgum þótti fullt grimmt af landsliðsþjalfaranum Southgate að velja Trent ekki í síðustu landsleiki.

Trent átti frábæran leik gegn Arsenal í 0-3 útisigri í gær og minnti heldur betur á sig.

Sjá einnig:
Alexander-Arnold svaraði enska landsliðsþjálfaranum vel

Garry Lineker sem lék með enska landsliðinu á sínum tíma segir að Trent hafi svarað höfnuninni á fullkominn hátt í gærkvöldi.

„Fullkomið svar frá Trent við þessu furðulega vali á enska landsliðhópnum. Hann hefur verið frábær í kvöld. Ekki hægt að skilja hann eftir heima í sumar. Einfaldlega ekki hægt."

England tekur þátt í EM 2020(20201) í sumar og var búist við því að Trent yrði í byrjunarliði liðsins á mótinu. Trent lagði upp fyrra mark Diogo Jota í gær með frábærri sendingu.


Athugasemdir
banner
banner
banner