Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 04. júní 2020 16:02
Magnús Már Einarsson
400 miðar í boði á Kópavogsslaginn - Ágóðinn í gott málefni
Mynd: .
Á sunnudaginn munu Breiðablik og HK mætast í góðgerðarleik á Kópavogsvelli kl.12:00.

Einungis verður selt í tvö hólf og því verða aðeins 400 miðar í boði. Öll miðasala fer í gegnum tix.is. Miðinn kostar 1.000kr og rennur allur ágóði af miðasölu til Mæðrastyrksnefndar Kópavogs.

Börn fædd 2005 eða síðar fá frítt inn og þurfa þar af leiðandi ekki að vera með miða.

„Hlökkum til að sjá ykkur á Kópavogsvelli á sunnudaginn. Leikurinn verður frábær skemmtun og enn betra að styrkja gott málefni!" segir í fréttatilkynningu fyrir leikinn.

Smelltu hér til að kaupa miða
Athugasemdir
banner
banner