04.08.26 - 10:30
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 16. umferðar - Í sjötta sinn í úrvalsliðinu

Aron Snær Ingason er leikmaður umferðarinnar en hann var þrælöflugur í toppslagnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Örn Bragi Hinriksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Ingi Óskarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Ingason er leikmaður umferðarinnar en hann var þrælöflugur í toppslagnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

16. umferð Lengjudeildarinnar lauk í gær. Það var mikið skorað í umferðinni og úrvalslið umferðarinnar er því ansi sókndjarft.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Aron Snær Ingason - Þróttur
Þróttur vann 4-1 sigur á Aftureldingu í viðburðaríkum toppslag deildarinnar. Aron var besti maður vallarins og er í sjötta sinn í liði umferðarinnar. Hann skoraði tvö mörk og var að hóta þrennunni. Var stórhættulegur á boltanum og vel að þessu kominn.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Aron Snær Ingason - Þróttur
Þróttur vann 4-1 sigur á Aftureldingu í viðburðaríkum toppslag deildarinnar. Aron var besti maður vallarins og er í sjötta sinn í liði umferðarinnar. Hann skoraði tvö mörk og var að hóta þrennunni. Var stórhættulegur á boltanum og vel að þessu kominn.

Þróttur á fleiri fulltrúa. Sigurvin Ólafsson er þjálfari umferðarinnar og Örn Bragi Hinriksson er í liðinu en hann var meðal markaskorara Þróttara.
Theodór Ingi Óskarsson skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Fylkis á Völsungi. Hlynur Sævar Jónsson skoraði einnig í leiknum.
Gunnleifur Orri Gunnleifsson lagði upp sigurmark Grindavíkur sem vann Leikni 1-0. Ólafur Íshólm Ólafsson markvörður Leiknis var hinsvegar valinn maður leiksins. Eiður Aron Sigurbjörnsson var besti maður vallarins í 1-0 útisigri Njarðvíkur á Ægi.
Kristófer Dan Þórðarsson skoraði fyrsta mark Gróttu í 3-0 útisigri gegn Vestra. Dagur Bjarkason var valinn maður leiksins.
Einn leikur í umferðinni var spilaður um miðjan júlí. Karl Ágúst Karlsson og Dominik Radic voru báðir með mark og stoðsendingu í 5-1 sigri HK á ÍR.
Fyrri úrvalslið:
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Örn Bragi Hinriksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Ingi Óskarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |
