Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 04. desember 2021 07:30
Victor Pálsson
Lallana ekki með gegn Southampton
Mynd: Getty
Adam Lallana, leikmaður Brighton, verður ekki með sínu liði sem mætir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Lallana er uppalinn hjá Southampton en hann spilaði 265 leiki og skoraði 60 mörk áður en hann hélt til Liverpool þar sem lítið gekk upp.

Lallana, Adam Webster og Jeremy Sarmiento meiddust allir í síðasta leik gegn West Ham og verða ekki klárir fyrir þessa viðureign.

Það er mikill skellur fyrir bæði Lallana og Brighton en sá fyrrnefndi hefði mjög viljað spila gegn sínu gamla félagi.

Lallana er 33 ára gamall og hefur spilað 13 deildarleiki fyrir Brighton á tímabilinu og reynst liðinu mjög mikilvægur.
Athugasemdir
banner
banner
banner