Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. janúar 2021 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Özil í viðræðum við DC United
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að hinn 32 ára gamli Mesut Özil sé í samningsviðræðum við DC United í bandarísku MLS deildinni.

Wayne Rooney lék fyrir DC United í eitt og hálft ár en liðið hefur átt í miklum erfiðleikum eftir brottför hans og endaði meðal neðstu liða MLS deildarinnar í fyrra.

Özil er að semja um risasamning hjá DC sem inniheldur vænan pakka fyrir M10 fatalínuna hans og 39 Steps kaffikeðjuna. Özil yrði auk þess andlit félagsins.

Özil hefur ekki verið uppá sitt besta í nokkur ár og er ekki búinn að vera í kringum byrjunarlið Arsenal síðan Mikel Arteta gaf honum nokkur tækifæri í vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner