Lorenzo Insigne, fyrirliði Napoli, var brjálaður eftir 3-3 jafntefli liðsins gegn Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.
Sassuolo jafnaði metin í uppbótartíma eftir að Insigne hafði komið Napoli yfir seint í leiknum. Sassuolo komst tvisvar yfir í leiknum en Napoli tók forystuna á 90. mínútu með marki Insigne á vítapunktinum. Sassuolo fékk vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar og jöfnuðu metin í 3-3.
Insigne gat ekki falið reiði sína eftir að flautað hafði verið til leiksloka.
Hann sparkaði í auglýsingaskilti og öskraði: „Þvílíkt skítalið."
Napoli er í sjötta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar en hér að neðan má sjá myndband af því þegar Insigne brjálaðist.
#Napoli, #Insigne esce dal campo gridando “Squadra di me**a”. A chi si riferiva?
— Simone Guadagno (@SimoneGuadagnoo) March 3, 2021
pic.twitter.com/eM2ydfGyBR
Athugasemdir