Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. mars 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kroos gífurlega ósáttur við heimabúning Real Madrid
Toni Kroos.
Toni Kroos.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þýski miðjumaðurinn Toni Kroos er ekki hrifinn af heimabúningum Real Madrid á þessari leiktíð.

Búningurinn er með kraga en það er eitthvað sem er ekki að gleðja Þjóðverjann mjög mikið.

Hann greindi frá óánægju sinni í hlaðvarpinu sínu en þar sagði hann einfaldlega: „Póló-bolur er ekki fótboltatreyja. Þetta eru skilaboð til allra íþróttavöruframleiðanda. Þetta er skelfilegt."

„Bolir með kraga eru óþægilegir að spila í. Þú ert líka með tvær tölur en þú þarft bara að bæta nokkrum við í viðbót og þá ertu kominn með skyrtu."

„Þetta er ekki gott mál."

Það er Adidas sem framleiðir búninginn fyrir Real Madrid en hér fyrir neðan má sjá mynd af Kroos í honum.


Athugasemdir
banner