Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. apríl 2021 18:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Bjarki Steinn og Óttar Magnús á bekknum gegn Spal
Óttar í leik með Víkingi í fyrra
Óttar í leik með Víkingi í fyrra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spal 1 - 1 Venezia
1-0 F. Di Francesco ('43)
1-1 P. Ceccaroni ('45+1)

Leik Spal og Venezia í ítölsku B-deildinni lauk með 1-1 jafntefli.

Þeir Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlsson voru á varamannabekk Venezia en komu ekki við sögu.

Óttar kom við sögu í leik Venezia á föstudag en hann er að snúa til baka eftir meiðsli. Bjarki Steinn var hluti af U21 árs landsliðinu á EM í Ungverjalandi.

Mörk leiksins í dag komu undir lok fyrri hálfleiks. Heimamenn komust yfir en gestirnir jöfnuðu áður en flautað var til leikhlés.

Venezia er í 5. sæti deildarinnar með 50 stig, þremur stigum meira en Spal í 6. sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner