Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 05. maí 2021 10:45
Elvar Geir Magnússon
Kounde til Chelsea?
Franski varnarmaðurinn Jules Kounde.
Franski varnarmaðurinn Jules Kounde.
Mynd: Getty Images
Jules Kounde, 22 ára leikmaður Sevilla, hefur verið orðaður við Real Madrid í sumar. Madrídingar gætu lagt fram tilboð ef Sergio Ramos eða Raphael Varane yfirgefa félagið.

Varnarmaðurinn ungi kom frá Bordeaux 2019 og hefur frammistaða hans vakið athygli og áhuga. Talið er að Sevilla gæti selt hann ef um 70 milljóna evra tilboð berst.

Chelsea er meðal félaga sem hafa sýnt honum áhuga og Sport Witness telur að enska félagið sé í bestu stöðunni til að krækja í leikmanninn.

Kounde er réttfættur og gæti mögulega tekið við stöðu Cezar Azpilicueta í framtíðinni.

Fikayo Tomori gæti alfarið farið til AC Milan og þeir Antonio Rudiger og Andreas Christensen eiga aðeins eitt ár eftir af samningum sínum á Stamford Bridge.
Athugasemdir
banner
banner
banner