Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. júní 2021 17:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Þórsarar náðu ekki að leggja níu Ólsara
Lengjudeildin
Sölvi kom Þór yfir
Sölvi kom Þór yfir
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Víkingur Ó. 2 - 2 Þór
0-1 Sölvi Sverrisson ('10 )
1-1 Kareem Isiaka ('41 )
1-2 Jakob Snær Árnason ('45 )
1-2 Alvaro Montejo Calleja ('52 , misnotað víti)
2-2 Marteinn Theodórsson ('80 )

Rautt spjald: ,Emmanuel Eli Keke, Víkingur Ó. ('51)Kareem Isiaka, Víkingur Ó. ('71)

Víkingur Ólafsvík fékk Þór frá Akureyri í heimsókn í Lengjudeildinni í dag.

Það var hasar og læti í leiknum í dag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og tveir leikmenn Víkings fengu að líta rauða spjaldið. Þá klúðraði Alvaro Montejo vítaspyrnu fyrir Þór.

Sölvi Sverrisson kom gestunum yfir snemma leiks en Kareem Isiaka jafnaði metin fyrir heimamenn þegar fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Jakob Snær Árnason kom Þór aftur yfir á loka mínútu fyrri hálfleiks.

Þór fékk vítaspyrnu á 50. mínútu og Emmanuel Eli Keke fékk að líta rauða spjaldið. Alvaro Montejo steig á punktinn en Marvin Darri varði vítið. Ólafsvíkingar fengu síðan sitt annað rauða spjald en þar var að verki Kareem Isiak. Tveimur færri náði Víkingur að jafna metin en Marteinn Theodórsson skoraði.


Athugasemdir
banner