Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er á förum frá ítalska stórliðinu Inter eftir eitt tímabil hjá félaginu á láni frá Rangers í Skotlandi. Óvíst er hvað tekur við hjá Telmu en ljóst er að hennar verður saknað í Mílanó.
„Telma er að fara sem er mjög leiðinlegt. Við bjuggum á móti hvor annarri og ég er að missa minn herbergisfélaga í rauninni," sagði landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir um Telmu.
Karóína Lea og Cecilía Rán Rúnarsdóttir eru einnig á mála hjá Inter og þær eru búnar að kveðja Telmu vel.
„Sem betur fer fæ ég alltaf að sjá hana í landsliðinu.Það var erfitt að kveðja hana," sagði Karólína.

