Það er mikið um að vera í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM kvenna í dag og í kvöld.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spila við Úkraínu í dag en liðin eru saman í erfiðum undanriðli sem inniheldur einnig stórveldi Spánar og Englands.
Stelpurnar eru svo gott sem öruggar með þriðja sæti riðilsins. Þær þurfa fjögurra marka tap til þess að missa sætið til Úkraínu.
England og Spánn eigast við í toppslag riðilsins á Mallorca en England er með forystu eftir sigur í fyrri leiknum á heimavelli.
Þýskaland spilar við Noreg og stórþjóðir á borð við Frakkland og Holland eiga einnig leiki. Danmörk spilar við Svíþjoð í spennandi Skandinavíuslag.
Undankeppni HM - A-deild:
16:00 Úkraína - Ísland
16:00 Pólland - Frakkland
16:00 Austurríki - Slóvenía
16:15 Ítalía - Serbía
17:15 Danmörk - Svíþjóð
18:30 Írland - Holland
18:35 Þýskaland - Noregur
19:00 Spánn - England
Undankeppni HM - B-deild:
14:00 Slóvakía - Finnland
15:30 Tékkland - Albanía
16:00 Svartfjallaland - Wales
16:00 Skotland - Ísrael
17:00 Tyrkland - N-Írland
17:30 Sviss - Malta
18:15 Belgía - Lúxemborg
19:00 Portúgal - Lettland
Undankeppni HM - C-deild:
13:30 Georgía - Færeyjar
14:00 Aserbaídsjan - Ungverjaland
14:00 Armenía - Kasakstan
15:00 Bosnía - Litháen
15:00 Búlgaría - Gíbraltar
15:00 Moldavía - Rúmenía
17:00 Kósovó - Króatía
17:00 Liechtenstein - Eistland
17:30 Andorra - N-Makedónía



