Úkraína 0 - 1 Ísland
0-1 Thelma Karen Pálmadóttir ('25)
0-1 Thelma Karen Pálmadóttir ('25)
Lestu um leikinn: Úkraína 0 - 1 Ísland
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu spiluðu við Úkraínu í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM og fóru með góðan sigur af hólmi.
Leikurinn fór fjörlega af stað og sköpuðu þær úkraínsku meiri hættu á upphafsmínútunum. Ísland náði meiri tökum eftir fyrsta stundarfjórðunginn og skoraði Thelma Karen Pálmadóttir eftir einfalda sókn á 25. mínútu.
Sandra María Jessen vann skallabolta eftir langa sendingu upp völlinn og stakk Thelma Karen varnarmenn Úkraínu af áður en hún kláraði af mikilli fagmennsku.
Bæði lið fengu góð tækifæri til að bæta marki við leikinn í fyrri hálfleiknum en tókst ekki svo staðan var 0-1 fyrir Ísland í leikhlé.
Úkraína byrjaði seinni hálfleikinn betur heldur en íslenska liðið en Stelpurnar okkar endurheimtu stjórn á leiknum eftir fyrsta stundarfjórðunginn, líkt og í fyrri hálfleik.
Úkraína skapaði ekki mikla hættu fyrr en á lokakaflanum en tókst ekki að gera jöfnunarmark. Lokatölur 0-1 og er Ísland með 6 stig eftir 5 umferðir í undankeppninni.
Ísland spilar við ógnarsterkt landslið Spánar í lokaumferðinni.
05.06.2026 09:00
Af hverju er þessi leikur svona mikilvægur?



